Persónuverndarstefna
Síðast uppfært:
Ábyrgðaraðili
Veffirma ehf., kt. 610526-1280, Karfavogi 52, 104 Reykjavík, rekur Kubbaheimar og ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga sem lýst er hér. Fyrirspurnir: hallo@kubbaheimar.is.
Við vinnum persónuupplýsingar í samræmi við lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR).
Hvaða upplýsingum söfnum við og hvers vegna
Skráning á póstlista (tilkynning um opnun og fréttir) Við vistum netfangið þitt og hvenær og hvernig þú gafst samþykki. Grundvöllur vinnslunnar er samþykki þitt. Þú getur afskráð þig hvenær sem er með hlekk neðst í hverjum pósti eða með því að senda okkur póst.
Pantanir (þegar vefverslunin opnar) Nafn, heimilisfang, netfang, símanúmer og upplýsingar um pöntun. Við notum þær til að afgreiða og afhenda pöntunina og svara fyrirspurnum. Grundvöllur vinnslunnar er samningur við þig. Bókhaldsgögn eru varðveitt í sjö ár samkvæmt lögum um bókhald nr. 145/1994.
Greiðslur Greiðslur fara í gegnum Teya. Kortaupplýsingar fara beint til Teya og við fáum þær aldrei.
Samskipti Ef þú sendir okkur tölvupóst vistum við samskiptin eins lengi og þörf er á til að svara erindinu.
Vinnsluaðilar
Við notum eftirfarandi þjónustuaðila sem vinna upplýsingar fyrir okkar hönd:
- Brevo (Frakklandi): póstlisti og tölvupóstsendingar
- Cloudflare: öryggi og vefþjónusta sem tekur á móti skráningum. Gögn geta farið til Bandaríkjanna á grundvelli EU–US Data Privacy Framework og staðlaðra samningsákvæða.
- statichost.eu (ESB): hýsing vefsíðunnar
- ALL-INKL.COM (Þýskalandi): hýsing vefverslunarkerfis
- Teya: greiðslumiðlun
- Dropp og Pósturinn: afhending pantana
- Payday: bókhald
Vafrakökur
Þessi vefsíða notar engar vafrakökur til greiningar eða markaðssetningar og sækir ekki efni frá þriðja aðila, s.s. leturgerðir.
Hve lengi geymum við upplýsingar
- Netfang á póstlista: þar til þú afskráir þig
- Pöntunar- og bókhaldsgögn: sjö ár
- Önnur samskipti: eins lengi og þörf krefur
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig og láta leiðrétta þær eða eyða þeim. Þú getur andmælt vinnslu eða óskað eftir að hún verði takmörkuð, fengið upplýsingarnar afhentar (flutningsréttur) og afturkallað samþykki hvenær sem er. Hafðu samband á hallo@kubbaheimar.is.
Þú getur einnig sent kvörtun til Persónuverndar.
Breytingar
Við getum uppfært þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf aðgengileg á þessari síðu.
